Árni Freyr Stef...'s profileÁrni sem var í Hollandi ...PhotosBlogLists Tools Help

Blog


    May 27

    Eurovision er bara OK

    DSC03461

    Það eru fáir hlutir sem ég hef lagt mig jafn mikið fram um að úthúða og Eurovision, nema ef vera skyldi gæði hollenzkra hamborgara. Á laugardagskveld horfðum við stórfjölskyldan á Eurovision, sem brátt er að breytast í einhvers konar pólitískan samkvæmisleik. Stórfjölskyldan var hér í heimsókn til að taka þátt í útskrift minni úr TU Delft. Þau mættu á miðvikudeginum, daginn fyrir útskriftina. Við grilluðum heima og röltum aðeins um. Eftir að hafa fylgt fólkinu heim stalst ég þó til að horfa á seinni hálfleikinn í úrslitaleik meistaradeildarinnar á Proeflokaal. Daginn eftir var útskriftin. Hún gekk bara vel og ég fékk meira að segja tvær spurningar úr salnum (án þess að hafa undirbúið þær neitt sérstaklega). Til að fagna áfanganum fórum við út að borða um kvöldið á frábærum stað og enduðum svo á Beestenmarkt. Á föstudeginum var ég með partí heima sem einnig var stórfínt. Síðustu gestir voru að fara á sama tíma og, Thomas (sambýlingur minn hér), var á leiðinni út í bílprófið sitt.

    Daginn eftir var ég hálf steiktur enda nánast ósofinn. Það var því nokkuð magnað að ég skuli hafa náð að halda mér vakandi nógu lengi yfir Eurovision um kvöldið svo ég missti ekki af snilldinni sem þar kom fram. Frakkland senti Sebastien nokkurn Tellier á sviðið með lagið Divine. Ég held að þetta sé klárlega besta lag sem komið hefur í þessa keppni í mörg ár. Þetta sannar regluna að það er ekkert alveg fullkomlega ömurlegt og gimsteinar finnast á ótrúlegustu stöðum. Eurovision í ár hefur því að minnsta kosti kallað fram tvö frábær lög, þetta og svo "Hvar ertu nú" með Dr. Spock. Það er bara fínn árangur, talsvert betri en söngvakeppnir gera yfirleitt. Ég mun því héðan í frá vera skilningsríkari í garð þessa fyrirbæris.

    Á sunnudeginum fórum við til Rotterdam og fórum upp í Euromast. Eftir það tóku amma, afi, Lilja og Andrea lestina til Parísar en ég, mamma og pabbi tókum nokkuð þekkta Delft-tvennu, Abessynie og Bebop. Núna er ég síðan bara í óða önn að pakka niður og koma mér heim aftur. Kem heim á miðnætti næsta laugardag.

    Ég bæti við snilldarlögunm tveim sem Eurovision kallaði fram þetta árið:

     
     

    Comments

    Please wait...
    Sorry, the comment you entered is too long. Please shorten it.
    You didn't enter anything. Please try again.
    Sorry, we can't add your comment right now. Please try again later.
    To add a comment, you need permission from your parent. Ask for permission
    Your parent has turned off comments.
    Sorry, we can't delete your comment right now. Please try again later.
    You've exceeded the maximum number of comments that can be left in one day. Please try again in 24 hours.
    Your account has had the ability to leave comments disabled because our systems indicate that you may be spamming other users. If you believe that your account has been disabled in error please contact Windows Live support.
    Complete the security check below to finish leaving your comment.
    The characters you type in the security check must match the characters in the picture or audio.

    To add a comment, sign in with your Windows Live ID (if you use Hotmail, Messenger, or Xbox LIVE, you have a Windows Live ID). Sign in


    Don't have a Windows Live ID? Sign up

    Trackbacks

    The trackback URL for this entry is:
    http://arnist.spaces.live.com/blog/cns!AE8C405642917C5F!3550.trak
    Weblogs that reference this entry
    • None