| Árni Freyr Stef...'s profileÁrni sem var í Hollandi ...PhotosBlogLists | Help |
|
June 10 Kominn heim31. maí sl. kom flutti ég frá Hollandi til Íslands. Að því tilefni var nafni þessarar gleðisíðu breytt til að endurspegla betur raunveruleikann. Fyrst um sinn mun ég búa í foreldrahúsum í Fossvoginum en líkur eru á því að einhverntíma seinna fari ég í eigin íbúð einhversstaðar (þó vestan megin Elliðaánna). Eins og staðan er núna eru einu möguleikar mínir á að komast í sér húsnæði í gegnum leigumarkaðinn. Tvöfaldar RolaHola-holur eru lausar fyrir um 100 þús kall á mánuði, kostaboð. Síðustu helgi var farið í fyrstu Botnaferð sumarsins (sjá einnig fljotsbotn.spaces.live.com). Ég, Brynjar, Sindri, Brjánsi, Hákon og Þórólfur Jarl mættum þangað seint á föstudagskveld til í Kubb-slaginn. Enginn man hvernig sá leikur fór. Daginn eftir var veitt af kappi þrátt fyrir að hvirfilbylurinn Brjáll væri að leggja leið sína yfir landið á sama tíma. Eitthvað var svo drukkið af áfengi, en enginn man hversu mikið. Á sunnudeginum var sýslumannsborgarinn svo prófaður í Víkurskála. Þess fyrir utan hef ég verið að þreifa fyrir mér á vinnumarkaðnum og ræða við mann og annan. Hér eru svo að endingu þrjú veiðivideo úr ferðinni. Brjánn berst við skrímsli (fyrri hluti) Brjánn berst við skrímsli (seinni hluti) Brynjar landar villidýri TrackbacksThe trackback URL for this entry is: http://arnist.spaces.live.com/blog/cns!AE8C405642917C5F!3617.trak Weblogs that reference this entry
|
|
|