Profilo di Árni Freyr Stef...Árni sem var í Hollandi ...FotoBlogElenchi Strumenti Guida

Árni sem var í Hollandi en er nú á Íslandi

Goede middag meneer/mevrouw
01 novembre

Kreppa

12102008142

Það er kreppa og krepputal hvert sem litið er. Þegar ég var í Hollandi um daginn var IceSave málið að koma á yfirborðið þar í landi og ótrúlegasta fólk fór að ræða við mann um íslenska bankakerfið. Einnig var ég ásakaður um að drekka bjór fyrir stolna peninga (reyndar af manni sem sennilega hefur aldrei átt pening). Alla dagana fylltu stríðsfyrirsagnir um Ísland forsíður allra helstu dagblaða landsins. Skemmtilegasta forsíðan var vafalaust þessi úr Haagsche Courant.

Er kreppan komin til að vera? Verður mér ekki hleypt inn í Holland aftur? Hver er lausnin út úr vandanum? Stereolab útskýra málið nánar:

 

it's alright 'cos the historical pattern has shown
how the economical cycle tends to revolve
in a round of decades three stages stand out in a loop
a slump and war then peel back to square one and back for more


bigger slump and bigger wars and a smaller recovery
huger slump and greater wars and a shallower recovery


you see the recovery always comes 'round again
there's nothing to worry for things will look after themselves
it's alright recovery always comes 'round again
there's nothing to worry if things can only get better

there's only millions that lose their jobs and homes and sometimes accents
there's only millions that die in their bloody wars, it's alright


it's only their lives and the lives of their next of kin that they are losing
it's only their lives and the lives of their next of kin that they are losing

it's alright 'cos the historical pattern has shown
how the economical cycle tends to revolve

in a round of decades three stages stand out in a loop
a slump and war then peel back to square one and back for more

bigger slump and bigger wars and a smaller recovery
huger slump and greater wars and a shallower recovery

don't worry be happy things will get better naturally
don't worry shut up sit down go with it and be happy

dum, dum, dum, de dum dum, de duh de duh de dum dum dum... ah ah
dum, dum, dum, de dum dum, de duh de duh de dum dum dum... ah ah

01 agosto

Júlí highlights

Björgunarafrek mánaðarins: Björgun Platons af toppi Esjunar, þar sem hann sat sallarólegur. Trausti mun einnig eiga metið í að komast úr Ljósalandi 25 og upp að Steini, samtals um 27 mín. Fleiri tóku þó þátt og eiga Pétur, Brynjar og Unnur einnig mikið hrós skilið fyrir þeirra framlag.

30072008039 

Ferðalag mánaðarins: Nú er úr vöndu að ráða því fjöldinn allur af snilldar ferðum voru farnar. Ber þar hæst Sumarferð Ferðaklúppsins Hjalta um Suðurland, Gullni Þríhyrningur Spaunverjanna og svo veiðiferðin á Grundó. Hér verður veiðiferðin fyrir valinu, enda varaði hún lengur en hinar ferðirnar auk þess sem landaður afli var talinn í tugum kílóa (flakað).

Land mánaðarins: Katalónía átti stóran sess í júlímánuðinum en alls munu um 8 Katalónar hafa komið heim og sofið og/eða snætt. Fleiri þjóðerni hafa þó einnig látið sjá sig, en þó ekki í sama mæli.

Gleðifrétt mánaðarins: Nýjasti meðlimur fjölskyldunar fæddur í París, Arthur Már Thierry-Mieg.

Arthur Mar

Sprettir mánaðarins: Trausti fór mikinn á Meistaramóti Íslands og lenti í öðru sæti í 100, 200 og 400 metra hlaupi þrátt fyrir að vera meiddur í náranum.

 

Klúður mánaðarins: Að bjóða Dóra og familíu í mat en mæta svo ekki sjálfur (Enn og aftur sorry, Dóri).

Dagur mánaðarins: Klárlega gærdagurinn. Heitasti dagur í sögu Reykjavíkur, hætti í vinnunni á hádegi, fór í sund og grillaði svo rækjur og þorsk í kvöldmat.

Hljómsveit mánaðarins: Soil & "PIMP" Sessions. Hjólandi í og úr vinnu hefur diskur þeirra "Pimp of the Year" rúllað í iPodinum nánast stanslaust allan mánuðinn.

 

12 giugno

Pétur drekkur Breezer

Þegar Pétur fer á djammið passar hann sig á að eiga alltaf nóg af Breezer. Skemmtilegt þykir honum að byrja á Breezer Tropical Orange, en sá drykkur er tilvalinn til að koma manni í réttu stemmninguna.

DSC03481 DSC03482

Þegar að líða tekur á djammið er oft gott að skipta yfir í Breezer Cranberry, en sá drykkur er einnig sérdeilis góður fyrir meltinguna, og það veit Pétur vel.

DSC03483 DSC03484

Og Pétur veit sem er, að Bubbi er tilbúinn að greiða honum 10 evrur í hvert sinn sem hann skellir sér á Breezer-djamm.

DSC03485

10 giugno

Kominn heim

Map image

31. maí sl. kom flutti ég frá Hollandi til Íslands. Að því tilefni var nafni þessarar gleðisíðu breytt til að endurspegla betur raunveruleikann. Fyrst um sinn mun ég búa í foreldrahúsum í Fossvoginum en líkur eru á því að einhverntíma seinna fari ég í eigin íbúð einhversstaðar (þó vestan megin Elliðaánna). Eins og staðan er núna eru einu möguleikar mínir á að komast í sér húsnæði í gegnum leigumarkaðinn. Tvöfaldar RolaHola-holur eru lausar fyrir um 100 þús kall á mánuði, kostaboð.

DSC03497   

Síðustu helgi var farið í fyrstu Botnaferð sumarsins (sjá einnig fljotsbotn.spaces.live.com). Ég, Brynjar, Sindri, Brjánsi, Hákon og Þórólfur Jarl mættum þangað seint á föstudagskveld til í Kubb-slaginn. Enginn man hvernig sá leikur fór. Daginn eftir var veitt af kappi þrátt fyrir að hvirfilbylurinn Brjáll væri að leggja leið sína yfir landið á sama tíma. Eitthvað var svo drukkið af áfengi, en enginn man hversu mikið. Á sunnudeginum var sýslumannsborgarinn svo prófaður í Víkurskála.

DSC03528

Þess fyrir utan hef ég verið að þreifa fyrir mér á vinnumarkaðnum og ræða við mann og annan. Hér eru svo að endingu þrjú veiðivideo úr ferðinni.

Brjánn berst við skrímsli (fyrri hluti)

 

Brjánn berst við skrímsli (seinni hluti)

 

Brynjar landar villidýri

 
09 giugno

Hollendingar verða Evrópumeistarar

Já, dömur mínar og herrar. Hollendingar vinna, svo einfallt er það.

 sexytime

A1 Portúgal      
  Leikur 25 Portúgal    
B2 Króatía      
    Leikur 29 Portúgal  
B1 Þýzkaland      
  Leikur 26 Þýzkaland    
A2 Tyrkland      
      Leikur 31 Holland
C1 Holland      
  Leikur 27 Holland    
D2 Rússland      
    Leikur 30 Holland
D1 Spánn      
  Leikur 28 Spánn    
C2 Frakkland      
 

 

Rétt er að taka fram að góðar líkur eru á því að Dirk Kuyt verði valinn maður mótsins.

27 maggio

Eurovision er bara OK

DSC03461

Það eru fáir hlutir sem ég hef lagt mig jafn mikið fram um að úthúða og Eurovision, nema ef vera skyldi gæði hollenzkra hamborgara. Á laugardagskveld horfðum við stórfjölskyldan á Eurovision, sem brátt er að breytast í einhvers konar pólitískan samkvæmisleik. Stórfjölskyldan var hér í heimsókn til að taka þátt í útskrift minni úr TU Delft. Þau mættu á miðvikudeginum, daginn fyrir útskriftina. Við grilluðum heima og röltum aðeins um. Eftir að hafa fylgt fólkinu heim stalst ég þó til að horfa á seinni hálfleikinn í úrslitaleik meistaradeildarinnar á Proeflokaal. Daginn eftir var útskriftin. Hún gekk bara vel og ég fékk meira að segja tvær spurningar úr salnum (án þess að hafa undirbúið þær neitt sérstaklega). Til að fagna áfanganum fórum við út að borða um kvöldið á frábærum stað og enduðum svo á Beestenmarkt. Á föstudeginum var ég með partí heima sem einnig var stórfínt. Síðustu gestir voru að fara á sama tíma og, Thomas (sambýlingur minn hér), var á leiðinni út í bílprófið sitt.

Daginn eftir var ég hálf steiktur enda nánast ósofinn. Það var því nokkuð magnað að ég skuli hafa náð að halda mér vakandi nógu lengi yfir Eurovision um kvöldið svo ég missti ekki af snilldinni sem þar kom fram. Frakkland senti Sebastien nokkurn Tellier á sviðið með lagið Divine. Ég held að þetta sé klárlega besta lag sem komið hefur í þessa keppni í mörg ár. Þetta sannar regluna að það er ekkert alveg fullkomlega ömurlegt og gimsteinar finnast á ótrúlegustu stöðum. Eurovision í ár hefur því að minnsta kosti kallað fram tvö frábær lög, þetta og svo "Hvar ertu nú" með Dr. Spock. Það er bara fínn árangur, talsvert betri en söngvakeppnir gera yfirleitt. Ég mun því héðan í frá vera skilningsríkari í garð þessa fyrirbæris.

Á sunnudeginum fórum við til Rotterdam og fórum upp í Euromast. Eftir það tóku amma, afi, Lilja og Andrea lestina til Parísar en ég, mamma og pabbi tókum nokkuð þekkta Delft-tvennu, Abessynie og Bebop. Núna er ég síðan bara í óða önn að pakka niður og koma mér heim aftur. Kem heim á miðnætti næsta laugardag.

Ég bæti við snilldarlögunm tveim sem Eurovision kallaði fram þetta árið:

 
 
20 maggio

Sinnep í rassinn!

káerr

Er að hlusta á lýsingu KR-útvarpsins á KR-Breiðablik. Ég hef aldrei hlustað á þetta útvarp áður, enda fundist það helst til pudsaralegt fyrirbæri. En ég verð að viðurkenna að lýsandinn, Hilmar Guðjónsson, kemur mér skemmtilega á óvart. Hann heldur að sjálfsögðu gríðarlega með sínu liði og skín það vel út úr lýsingunni. Æsingurinn er svakalegur, hugsanlega bara Höddi Magg sem stendur honum framar. Orðaforinn er líka skemmtilega einhæfur en sá frasi sem er hvað nýstárlegastur er að eitthvað sé "sinnep í rassinn" á mönnum, og meinar þá að viðkomandi hlutur eigi að koma mönnum í gang. Ég mæli með þessu sérstaka fyrirbæri.

19 maggio

Ajax niðurlægðir á meðan Olympiakos voru hylltir

Ég ætla að óska Bjarna Þór Viðarssyni, Stein Huysegems, Alfred Schreuder og félögum þeirra í FC Twente til hamingju með glæsilegt 0-0 jafntefli á Amsterdam ArenA. Það tryggði þeim aðgöngumiða í meistaradeildina að ári á kostnað Ajax. Ein helsta driffjöður þessa glæsilega hóps er Karim El Ahmadi, en hann er búinn að skrifa undir hjá Rotterdams stórveldinu og lendir væntanlega með þyrlu á De Kuip í ágúst.

huysegems

Fleiri góðar fréttir úr heimi knattspyrnunar er að sjáfsögðu frá Grikklandi en þar var Olympiakos að landa sinni 12 tvennu. Eftir að hafa verið krýndir glæstir Grikklandsmeistarar í síðustu viku unnu þeir nú á laugardaginn Aris frá Þessalóniku 2-0 í gríska bikarúrslitaleiknum. "FORCA THRILLOS", eins og máltækið segir.

olympiakos

15 maggio

Daginn eftir

Þetta er það sem eftir er af húsinu. En skaðinn er talsvert meiri en bara brunabótamat hússins. Svo vitnað sé til De Pers að þá tapaðist þarna arkitektaskóli sem var stefnumarkandi á heimsvísu. Daginn eftir brunan var búið að plana gríðarstóra sýningu á hundruðum módela, sum dýrari en 50 þús evrur. Mikið af munum eftir fræga arkitekta og hönnuði á borð við Gerrit Rietveld. Einstakt safn stóla frá 19.öld og fyrri hluta þeirrar tuttugustu. Bókasafn með 40.000 bókum og óteljandi 'originale' teikningar.

DSC03445

DSC03447 

DSC03452  

Sá partur byggingarinnar sem hrundi í gær er á bakvið tréin. Það sem hrundi var partur af einni hlið hússins. Húsið verður þó að öllum lýkindum rifið og fjarlægt á næstu dögum.

DSC03454

13 maggio

Húsið hrunið

Byggingin hrundi nú rétt í þessu. Senan minnir á það þegar tvíburaturnarnir í New York hrundu til grunna. Það var þó ekki farþegaþotu hér um að kenna, heldur var þetta kaffivél. Nokkuð magnað myndband hér á ferð.

 

 
Foto 1 di 22
Altri album (122)

Árni Stefánsson

Professione
Località
Nessun elemento ancora aggiunto.